{"title":"Vinnustofur","description":"\u003cp\u003eHér finnur þú stakar vinnustofur þar sem við tökum fyrir ákveðin svæði líkamans eða ákveðin viðfangsefni. \u003c\/p\u003e\u003cp\u003eVið blöndum saman einfaldri fræðslu og verklegri vinnu með hreyfingu, teygjum, boltum, bandvefslosun og öndun. \u003c\/p\u003e\u003cp\u003eMarkmiðið er að þú farir heim með betri skilning á líkamanum og einföld verkfæri sem þú getur notað sjálf\/ur. \u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eÞú þarft enga fyrri reynslu – bara að mæta.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e","products":[{"product_id":"losadu-um-rass-mjadmir-mjobak","title":"Losaðu um - Rass, mjaðmir \u0026 mjóbak","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eLosaðu um – rass, mjaðmir \u0026amp; mjóbak\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eErtu stíf\/ur í mjöðmunum, aum\/ur í rassinum eða alltaf eitthvað að finna fyrir mjóbakinu?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞessi svæði vinna öll saman. Þegar eitt þeirra er stíft eða hreyfist ekki nógu vel þurfa hin oft að taka meira á sig. Staðurinn sem kvartar er nefnilega ekki alltaf staðurinn þar sem spennan byrjar. Sem væri vissulega mjög þægilegt – en líkaminn virkar bara ekki alveg þannig. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ þessum 90 mínútna workshop ætlum við að fara yfir:\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e• hvernig rass, mjaðmir og mjóbak tengjast\u003cbr\u003e• af hverju stífleikinn kemur oft aftur\u003cbr\u003e• einfaldar leiðir til að losa um spennu\u003cbr\u003e• æfingar með boltum, teygjum og hreyfingu\u003cbr\u003e• hvað þú getur sjálf\/ur gert heima\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eWorkshopið\u003c\/strong\u003e er líka tilvalið fyrir þig ef þú átt bolta heima sem hafa aðallega safnað ryki uppi í skáp. Hér færðu tækifæri til að rifja upp hvernig þú notar þá og læra fleiri einfaldar æfingar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞetta verður ekki langur fyrirlestur eða einhver liðleikakeppni. Við ætlum að prófa hlutina, finna hvað virkar og læra að vinna aðeins betur með líkamann.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞú þarft enga fyrri reynslu og þarft alls ekki að vera liðug\/ur. Það er eiginlega bara mjög góð ástæða til að mæta.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eLengd:\u003c\/strong\u003e 90 mínútur\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eVerð:\u003c\/strong\u003e 6.500 kr.\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eStaður:\u003c\/strong\u003e Lotus þjálfun - Hátúni 6b\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eDagsetning:\u003c\/strong\u003e [dagsetning og tími]\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMættu í þægilegum fötum sem gott er að hreyfa sig í.\u003c\/p\u003e","brand":"Tónalind ","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52692047462680,"sku":null,"price":6500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0966\/7392\/3352\/files\/2.svg?v=1790343341"},{"product_id":"losadu-um-hals-herdar-efra-bak","title":"Losaðu um – háls, herðar \u0026 efra bak","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eLosaðu um – háls, herðar \u0026amp; efra bak\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eErtu alltaf með axlirnar hálfa leið upp að eyrum, stíf\/ur í hálsinum eða með spennu á milli herðablaðanna?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHáls, herðar og efra bak vinna náið saman. Þegar eitt svæði verður stíft eða þreytt fara hin oft að hjálpa aðeins of mikið til. Svo bætast skjáseta, streita og almenn keyrsla dagsins við – og áður en maður veit af er maður farinn að bera axlirnar eins og eyrnalokka.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ þessum 90 mínútna workshop förum við yfir:\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e• hvernig háls, herðar og efra bak tengjast\u003cbr\u003e• af hverju spennan kemur oft aftur\u003cbr\u003e• hvernig öndun, líkamsstaða og álag geta haft áhrif\u003cbr\u003e• einfaldar æfingar með boltum, teygjum og hreyfingu\u003cbr\u003e• hvað þú getur sjálf\/ur gert heima til að losa um\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞetta er líka frábær upprifjun fyrir þig sem átt bolta heima en manst ekki alveg hvað þú átt að gera við þá. Nú er kominn tími til að dusta af þeim rykið og koma þeim aftur í vinnu. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞetta verður blanda af einfaldri fræðslu og verklegum æfingum. Engin flókin fræði og engin liðleikakeppni – bara gagnleg verkfæri sem þú getur notað áfram heima.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞú þarft enga fyrri reynslu og þarft alls ekki að vera liðug\/ur.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eLengd:\u003c\/strong\u003e 90 mínútur\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eVerð:\u003c\/strong\u003e 6.500 kr.\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eStaður:\u003c\/strong\u003e Lotus þjáflun - Hátún 6b\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eDagsetning:\u003c\/strong\u003e [dagsetning og tími]\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMættu í þægilegum fötum sem gott er að hreyfa sig í.\u003c\/p\u003e","brand":"Tónalind ","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52692970209560,"sku":null,"price":6500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0966\/7392\/3352\/files\/1.svg?v=1790343338"},{"product_id":"losadu-um-faetur-hne-okklar","title":"Losaðu um – fætur, hné \u0026 ökklar","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eLosaðu um – fætur, hné \u0026amp; ökklar\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eErtu stíf\/ur í ökklunum, þreytt\/ur í fótunum eða eru hnén alltaf eitthvað að kvarta?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFætur, hné og ökklar vinna saman í hverju skrefi sem við tökum. Ef hreyfingin í ökklunum er lítil eða fóturinn styður ekki nógu vel við okkur getur hnéð þurft að taka meira á sig. Staðurinn sem kvartar er því ekki alltaf staðurinn þar sem vandinn byrjar. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ þessum 90 mínútna workshop förum við yfir:\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e• hvernig fætur, hné og ökklar tengjast\u003cbr\u003e• hvernig hreyfing í ökkla og fæti getur haft áhrif á hnéð\u003cbr\u003e• af hverju spennan eða stífleikinn kemur oft aftur\u003cbr\u003e• einfaldar æfingar með boltum, teygjum og hreyfingu\u003cbr\u003e• hvað þú getur sjálf\/ur gert heima\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVið vinnum meðal annars með iljar, kálfa og svæðin í kringum ökkla og hné. Markmiðið er að þú skiljir aðeins betur hvernig þessi svæði vinna saman og farir heim með æfingar sem þú getur raunverulega notað.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞetta er líka frábær upprifjun fyrir þig sem átt bolta heima en manst ekki alveg hvað þú átt að gera við þá. Nú er kominn tími til að dusta af þeim rykið og koma þeim aftur í vinnu. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞetta verður blanda af einfaldri fræðslu og verklegum æfingum. Engin flókin fræði og engin krafa um að geta staðið á öðrum fæti eins og flamingói.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞú þarft enga fyrri reynslu og allar æfingar eru gerðar á þínum hraða.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eLengd:\u003c\/strong\u003e 90 mínútur\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eVerð:\u003c\/strong\u003e 6.500 kr.\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eStaður: \u003c\/strong\u003eLotus þjálfun - Hátún 6b\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eDagsetning:\u003c\/strong\u003e [dagsetning og tími]\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMættu í þægilegum fötum sem gott er að hreyfa sig í.\u003c\/p\u003e","brand":"Tónalind","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52692973191448,"sku":null,"price":6500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0966\/7392\/3352\/files\/3.svg?v=1790343345"},{"product_id":"losadu-um-brjostkassi-ondun-bak","title":"Losaðu um – brjóstkassi, öndun \u0026 bak","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eLosaðu um – brjóstkassi, öndun \u0026amp; bak\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFinnst þér brjóstkassinn stífur, öndunin grunn eða bakið alltaf eitthvað að kvarta?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBrjóstkassinn er ekki bara beinagrind utan um lungun. Hann á að geta hreyfst með önduninni og vinnur náið með hryggnum, herðunum og vöðvunum í kring. Þegar hreyfingin verður lítil getur öndunin orðið grynnri og bakið þurft að vinna meira.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSkjáseta, streita og það að sitja lengi í sömu stöðu hjálpar yfirleitt ekki til. Líkaminn er ekkert sérstaklega hrifinn af því að vera brotinn saman yfir síma allan daginn. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ þessum 90 mínútna vinnustofu förum við yfir:\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e• hvernig brjóstkassi, öndun og bak tengjast\u003cbr\u003e• hvernig brjóstkassinn hreyfist þegar við öndum\u003cbr\u003e• hvernig stífleiki getur haft áhrif á öndun og hreyfingu baksins\u003cbr\u003e• einfaldar æfingar með boltum, teygjum, öndun og hreyfingu\u003cbr\u003e• hvað þú getur sjálf\/ur gert heima\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVið vinnum meðal annars með svæðið í kringum rifbein, brjóstvöðva, hliðar og bak. Markmiðið er ekki að þvinga fram einhverja risastóra öndun heldur að skapa aðeins meira rými svo öndunin geti flætt auðveldlega.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞetta er líka frábær upprifjun fyrir þig sem átt bolta heima en manst ekki alveg hvað þú átt að gera við þá. Nú er kominn tími til að dusta af þeim rykið og koma þeim aftur í vinnu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞetta verður blanda af einfaldri fræðslu og verklegum æfingum. Engin flókin fræði og engin krafa um að anda „rétt“. Við ætlum bara að skoða hvað hjálpar þínum líkama að hreyfast og anda aðeins frjálsar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞú þarft enga fyrri reynslu og allar æfingar eru gerðar á þínum hraða.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eLengd:\u003c\/strong\u003e 90 mínútur\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eVerð:\u003c\/strong\u003e 6.500 kr.\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eStaður:\u003c\/strong\u003e Lotus þjálfun - Hátún 6b\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eDagsetning:\u003c\/strong\u003e [dagsetning og tími]\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMættu í þægilegum fötum sem gott er að hreyfa sig í.\u003c\/p\u003e","brand":"Tónalind","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52692982792472,"sku":null,"price":6500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0966\/7392\/3352\/files\/4.svg?v=1790343348"},{"product_id":"losadu-um-allur-likaminn","title":"Losaðu um – allur líkaminn","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eLosaðu um – allur líkaminn\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eÞitt eigið viðhaldsprógramm\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÁttu bolta heima og nokkrar æfingar sem þú kannt alveg… en manst sjaldnast eftir þegar þú þarft á þeim að halda?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ þessari 90 mínútna vinnustofu förum við yfir einfalt viðhaldsprógramm fyrir allan líkamann. Við vinnum með bolta, mjúkar teygjur og hreyfingu og skoðum hvernig þú getur sett saman rútínu sem hentar þér.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVið förum meðal annars yfir:\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e• fætur og kálfa\u003cbr\u003e• mjaðmir, rass og mjóbak\u003cbr\u003e• brjóstkassa og bak\u003cbr\u003e• háls og herðar\u003cbr\u003e• einfaldar hreyfingar sem tengja svæðin saman\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMarkmiðið er ekki að gera hundrað æfingar eða finna alla aumu punktana í líkamanum á einu kvöldi. Markmiðið er að þú farir heim með einfalt prógramm sem þú skilur, manst eftir og getur raunverulega notað.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞetta er tilvalið fyrir þig sem vilt læra grunninn, rifja upp æfingar sem þú kannt nú þegar eða loksins dusta rykið af boltunum sem hafa verið í mjög langri hvíld uppi í skáp. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVinnustofan verður haldin einu sinni í mánuði og því geturðu líka mætt reglulega til að rifja upp, fá nýjar hugmyndir og halda boltanum – og líkamanum – aðeins betur við.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEngin flókin fræði og engin liðleikakeppni. Þú þarft enga fyrri reynslu og vinnur alltaf á þínum hraða.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eLengd:\u003c\/strong\u003e 90 mínútur\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eVerð:\u003c\/strong\u003e 6.500 kr.\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eStaður:\u003c\/strong\u003e Lotus þjálfun - Hátún 6b\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eDagsetning:\u003c\/strong\u003e [dagsetning og tími]\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMættu í þægilegum fötum sem gott er að hreyfa sig í.\u003c\/p\u003e","brand":"Tónalind","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52693003927832,"sku":null,"price":6500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0966\/7392\/3352\/files\/5.svg?v=1790343352"}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0966\/7392\/3352\/collections\/Vinnustofur_8.svg?v=1790263111","url":"https:\/\/tonalind.is\/collections\/vinnustofur.oembed","provider":"Tónalind ","version":"1.0","type":"link"}