Refund policy
Afpantanir og endurgreiðslur
Bókanir hjá Tónalind eru fyrirframgreiddar.
Bókun á viðburð, vinnustofu, tónheilun eða aðra þjónustu sem fer fram á ákveðnum degi og tíma er bindandi.
Ef þú kemst ekki getur þú haft samband við Tónalind í síðasta lagi 24 klukkustundum fyrir bókaðan tíma. Þá er hægt að færa bókunina yfir á annan sambærilegan tíma, ef pláss er laust, eða fá inneign sem nýtist hjá Tónalind.
Sé afbókað með minna en 24 klukkustunda fyrirvara er bókunin ekki endurgreidd og ekki hægt að færa hana yfir á annan tíma.
Ef ekki er mætt í bókaðan tíma fæst bókun ekki endurgreidd.
Ef Tónalind þarf að aflýsa
Ef Tónalind þarf að aflýsa viðburði, vinnustofu eða tíma færðu val um að færa bókunina yfir á annan tíma eða fá greiðsluna endurgreidda að fullu.
Réttur til að falla frá kaupum
Samkvæmt lögum nr. 16/2016 um neytendasamninga gildir almennt 14 daga réttur til að falla frá fjarsölusamningi.
Undantekning frá þeim rétti getur meðal annars átt við um tómstundaþjónustu þegar samið hefur verið um að þjónustan fari fram á ákveðnum degi eða ákveðnu tímabili. Þetta á við um dagsetta viðburði og þjónustu Tónalindar eftir því sem skilyrði laganna eru uppfyllt.
Lögbundin réttindi neytenda eru ávallt óskert.
Vörur
Ef keypt er áþreifanleg vara hjá Tónalind gilda lögbundin réttindi neytenda um skil, galla og endurgreiðslur eftir því sem við á.
Hafa samband
Ef þú þarft að breyta eða hætta við bókun skaltu hafa samband við Tónalind eins fljótt og hægt er tonalindin@gmail.com