{"product_id":"losadu-um-hals-herdar-efra-bak","title":"Losaðu um – háls, herðar \u0026 efra bak","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eLosaðu um – háls, herðar \u0026amp; efra bak\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eErtu alltaf með axlirnar hálfa leið upp að eyrum, stíf\/ur í hálsinum eða með spennu á milli herðablaðanna?\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHáls, herðar og efra bak vinna náið saman. Þegar eitt svæði verður stíft eða þreytt fara hin oft að hjálpa aðeins of mikið til. Svo bætast skjáseta, streita og almenn keyrsla dagsins við – og áður en maður veit af er maður farinn að bera axlirnar eins og eyrnalokka.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ þessum 90 mínútna workshop förum við yfir:\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e• hvernig háls, herðar og efra bak tengjast\u003cbr\u003e• af hverju spennan kemur oft aftur\u003cbr\u003e• hvernig öndun, líkamsstaða og álag geta haft áhrif\u003cbr\u003e• einfaldar æfingar með boltum, teygjum og hreyfingu\u003cbr\u003e• hvað þú getur sjálf\/ur gert heima til að losa um\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞetta er líka frábær upprifjun fyrir þig sem átt bolta heima en manst ekki alveg hvað þú átt að gera við þá. Nú er kominn tími til að dusta af þeim rykið og koma þeim aftur í vinnu. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞetta verður blanda af einfaldri fræðslu og verklegum æfingum. Engin flókin fræði og engin liðleikakeppni – bara gagnleg verkfæri sem þú getur notað áfram heima.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞú þarft enga fyrri reynslu og þarft alls ekki að vera liðug\/ur.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eLengd:\u003c\/strong\u003e 90 mínútur\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eVerð:\u003c\/strong\u003e 6.500 kr.\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eStaður:\u003c\/strong\u003e Lotus þjáflun - Hátún 6b\u003cbr\u003e\u003cstrong\u003eDagsetning:\u003c\/strong\u003e [dagsetning og tími]\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMættu í þægilegum fötum sem gott er að hreyfa sig í.\u003c\/p\u003e","brand":"Tónalind ","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52692970209560,"sku":null,"price":6500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0966\/7392\/3352\/files\/1.svg?v=1790343338","url":"https:\/\/tonalind.is\/products\/losadu-um-hals-herdar-efra-bak","provider":"Tónalind ","version":"1.0","type":"link"}