Tónheilun

Tónheilun

Tónheilun / Hljóðböð

Við erum umkringd hljóðum allan daginn. Þó að við getum útilokað margt af því sem við heyrum, umferðahljóð, hundsgelt, suð þvottavélarinnar – þá getur hljóð verið öflug. Að hlusta á ákveðin hljóð og nota á ákveðin hátt – oftast hugleiðslulega – getur verið heilsufarslega gott.

Tónheilun eða hljóðmeðferð er viðbótarmeðferð sem byggir á ákveðnum tónum, tíðnum og titringi ti, að stuðla að ró og slökun. Ólíkt tónlistarmeðferð sem getur falið í ´ser söng eða lagasmíði, felur tónheilun/hljóðmeðferð ekki í sér stexta, þó getur hún innifalið í sér raddtóna eða söng.

Tegundir hljóðmeðferðar eru meðal annars:

Binaural taktar: Tónar með tveimur mismunandi tíðnum eru spilaðir í aðskildum eyrum. Þegar þessir tveir tónar koma saman mynda þeir skynjaða þriðju tíðni sem getur haft áhrif á heilastarfssemi.

Hljóðböð: Eru hlustunarupplifun fyrir allan líkamann, þar sem notast er við taktföst hljóðfæri eins og kristalsöngskálar, tíbeskar söngskálar úr málmi, bjöllur og trommur. Hljóðin og titringurinn sem hljóðfærin gefa frá sér geta skapað djúpt hugleiðsluástand. 

Heilsufarslegur ávinningur hljóðmeðferðar

Rannsóknir á ávinningi hljóðmeðferðar fer vaxandi. Rannsakendur  einbeita sér ekki aðeins að tilteknum ávinningi hljóðmeðferðar. Þeir eru einnig að leita að bestum leiðum til að þá þessum ávinningi. Hvaða hljóðtíðnir eru áhrifaríkastar ? Hversu mikla hljóðmeðferð þarftu til að ná árangri ? Hverjir ættu að íhuga hljóðmeðferð?

Verkjastilling

Talið er að hljóðböð/tónheilun og aðrar gerðir að hugleiðslu dragi úr skynjuðum sársauka mfeð því að slaka á líkamanum og hafa áhrif á streituhormón, sem oft gera sársaukann verri.

Léttir á streitu og kvíða

Stöðugir og samtilltir titringur og bylgjur skálanna eða gonga virka næstum eins og innra nudd fyrir taugakerfið. 

Hljóðmeðferð getur verið ljúfur en öflugur bandamaður þeirra sem eiga erfitt með svefn. Hægir, taktfastir tónar hjálpa til við að endurstilla svefnrythman sem gerir það auðveldara að sofna og að halda sér sofandi. Fólk sem tekur reglulega þátt í hljóðböðum segir oft frá því að það sofni hraðar, vakni sjaldnar á nóttunni og inni fyrir meiri orku á morgnanna. Með tímanum styðja hljóðböðin að betri almennri líðan, og getur gefið huga og líkama þá djúpu hvíld sem þeir þurfa á að halda. 

Tilfinningaleg losun

Hljóð getur snert staði innra með okkur sem orð ná stundum ekki til. Djúpur ómur gongsins getur vakið upp tilfinningar sem við höfum kannski ekki gert okkur grein fyrir að við héldum í. Hljóðbað getur virkað eins að opna glugga í loftlausu herbergi, sem leyfir því sem var fast að hreyfast og losna. 

Hugleiðsla og einbeiting

Hljóðböð geta auðveldað hugleiðslu, sérstaklega fyrir þá sem eiga erfitt með að kyrrsetja hugann. Jönfu tónarnir gefa huganum eitthvað til að hvílast á og virka eins og brú yfir í kyrrð. Þegar að athyglin fylgir hljóðbylgjunum mjúklega verður auðveldara að vera til staðar og sleppa öllum hugsunum sem trufla. Með tímanum getur þetta stuðlað að betri einbeitingarhæfni og andlega seiglu.

Líkamleg endurnýjun

Titringur og bylgjur sem skálarnar, gong og önnur hljóðfæri framleiða, geta hjálpað til við að slaka á stífum vöðvum, styðja við heilbrigt blóðflæði og örvar nátturlegt heilunarferli líkamans. Margir finna fyrir léttleika, meiri orku eða finna fyrir létti frá minniháttar verkjum eftir meðferð. Áhrif hljóðs á líkamann snýst ekki bara um það sem við heyrum, heldur einnig það sem við finnum. Lágu tónarnir og djúpa ómun geta borist í gegnum vefi og bein og skapað raunveruleg áhrif sem bæta upp andlegan og tilfinningalegan ávinning.

Jafnvægi orkustövða og orkufllæðis

Kristalskálar eru stilltar á ákveðnar tíðnir sem samsvara orkustöðvunum sjö. Þegar þessar orkustöðvar eru úr jafnvægi getur það birst sem þreyta, tilfinningaleg stífla eða líkamlega spenna. Hljóðbað hjálpar til að hreinsa og endurstilla þessar orkustöðvar og hvetur til jafnvægis og flæðis um allt kerfið. Þetta getur gert þig jarðbundnari, opnari og tengdari sjálfum þér og heiminum í kringum þig.

Tilfinning um tengingu

Það er eitthvað einstak við að deila hljóðbaði með öðrum. Þegar hljóðið fyllir rýmið byrjar einstaklingsbundnar orkur að samræmast og skapa sameiginlegt svið sem getur verið djúpt og gefandi. Það er áminning um að við erum hluti af stærri heild og að sameiginlegar stundir friðar og nærveru geta verið mjög nærandi.

Til baka í blogg