Hvað er tónheilun

Tónheilun er stund þar sem þú þarft í raun ekkert að gera nema koma þér vel fyrir og hlusta.

Ég vinn með kristalsskálar, tíbetskar skálar, gong, Somni Arkana og önnur hljóðfæri. Hljóðin fylla rýmið og þú finnur oft titringinn ekki síður en þú heyrir hann.

Þú liggur eða situr þægilega á meðan. Sumir sofna, aðrir finna mikið fyrir hljóðunum og titringnum og sumir finna einfaldlega meiri ró.

Það er ekkert ákveðið sem á að gerast. Það er engin rétt leið til að upplifa tónheilun.

Tónheilun er yfirleitt 60–90 mínútur, eftir því hvað við erum að gera hverju sinni.

Þú þarft enga fyrri reynslu – bara að mæta.

Það er eitthvað við hljóðið.

Maður heyrir hljóðið ekki bara, maður finnur það líka í líkamanum. Titringinn frá skálunum, gonginu og hinum hljóðfærunum. Stundum tekur maður bara eftir því að líkaminn hægir aðeins á sér.

  • Vinahópar

    Saumaklúbburinn, vinkonuhópurinn, afmæli eða bara hópur sem langar að gera eitthvað öðruvísi saman.

  • Vinnustaðir

    Fyrir starfsfólk, starfsdaga og hópefli. 60–90 mínútur þar sem enginn þarf að gera neitt nema koma sér vel fyrir.

  • Einkahópar

    Félög, retreat-hópar og aðrir lokaðir hópar. Tíminn er lagaður að hópnum, tilefninu og aðstæðum.

Þið getið komið til mín eða ég komið til ykkar.
Það fer eftir hópastærð, staðsetningu og aðstæðum.