Um Tónalind
Um mig
Ég hef lengi haft óbilandi áhuga á heilsu. Fyrst líkamlegri en síðar einnig andlegri heilsu, sem ég hef einbeitt mér að af meiri dýpt í kjölfar áfalla sem ég hef gengið í gegnum í lífinu.
Um árabil starfaði ég sem einkaþjálfari og kenndi hóptíma auk þess að veita heilsuráðgjöf, samhliða störfum við bókhald. Árið 2018 lenti ég í alvarlegu hjólaslysi þar sem ég slasaðist á hné. Í kjölfarið hrundi stoðkerfið og ég glímdi við króníska taugaverki. Þá hófst löng endurhæfing þar sem ég fór að leita leiða til að vinna með verki og spennu í líkamanum.
Um okkur

Yin Yoga
Í Yin Yoga fann ég það sem ég hafði verið að leita að. Rólegar og djúpar stöður, ásamt tíma og kyrrð, opnuðu fyrir aðra nálgun á líkamsvinnu en ég hafði áður kynnst. Yin Yoga hafði djúpstæð áhrif á mig og varð mikilvægur hluti af minni eigin endurhæfingu.
Ég tók þá ákvörðun að læra að kenna Yin Yoga og lauk námi hjá David Kim. Kennslan mín byggir á bæði faglegri þekkingu og eigin reynslu, með áherslu á að hlusta á líkamann, virða mörk og vinna með taugakerfið á mildan og öruggan hátt.
Bandvefslosun
Í framhaldi af Yin Yoga hélt ég áfram námi í Bretlandi þar sem ég lærði nudd og bandvefslosun hjá Jing Massage í Brighton. Bandvefslosun eða Myofascial Release varð fljótt órjúfanlegur hluti af minni vinnu.
Með því að prófa mig áfram og vinna markvisst með eigin líkama þróaðist æfingakerfi sem sameinar Yin Yoga, Pilates, bandvefslosun og nudd. Kerfið vinnur meðal annars að því að styrkja djúpvöðva kviðs og mjaðma, auka liðleika, losa um spennu í bandvef, draga úr verkjum og róa taugakerfið.
Árið 2020 lenti ég í háorkuárekstri og þá reyndist þessi nálgun mér afar dýrmæt til að lágmarka verki og styðja við bata í stoðkerfinu.
Markmið mitt er að miðla þeirri þekkingu og aðferðum sem ég hef þróað til að vinna með og lina verki í stoðkerfi, hvort sem þeir tengjast slysum, áverkum, vefjagigt, slitgigt, streitu eða áföllum. Með því að eignast verkfæri sem styðja við betri líðan eykst jafnvægi, lífsgæði og vellíðan í daglegu lífi.
Ég býð upp á lokuð námskeið sem byggja á þessari samþættu nálgun. Námskeiðin henta bæði byrjendum og lengra komnum og eru ekki eingöngu ætluð þeim sem glíma við verki, heldur öllum sem vilja losa um spennu, auka liðleika og bæta almenna líðan.
Menntun og reynsla
Yin Yoga og hugleiðsla
- Yogakennari 200 tímar
- Yin Yoga 60 tímar
- Meðgönguyoga
- Stólayoga
- Yoga Nidra kennararéttindi
Bandvefslosun og líkamsvinna
- Nuddnám Jing Massage UK
- Bandvefslosun MFR Jing Massage UK
- Roll Model Method kennararéttindi
- Stretch Academy
Hljóðheilun og orkuvinna
- Reikimeistari
- Gong grunnnám Arnbjörg Konráðsdóttir
- Sound healing level 1 og 2 Kyle Lam
- Sound healing og sound therapy level 1 og 2 Tom Llewellyn
Önnur reynsla
- Viðurkenndur bókari