Hugvíkkandi

Hugvíkkandi vinna er meira en ferðalagið sjálft

Það sem gerist fyrir og eftir skiptir máli.

Undirbúningur hjálpar þér að mæta reynslunni með skýrari ásetning.
Eftir á færðu rými til að skoða reynsluna og það sem kom upp.

Ég túlka ekki reynsluna fyrir þig.
Við skoðum hana saman og hvað þú vilt taka með þér áfram.

  • Einstaklingar

    Fyrir þig sem ert að undirbúa hugvíkkandi reynslu, vilt fá stuðning í kringum ferlið eða vinna úr reynslu sem þú hefur þegar átt.  

    Í undirbúningi getum við meðal annars skoðað ásetning, væntingar, ótta eða óvissu og hvað þú þarft til að fara inn í reynsluna með meiri skýrleika og öryggi.  

    Eftir á færðu rými til að fara yfir það sem kom upp, bæði það sem var skýrt og það sem kannski er erfiðara að átta sig á. Við skoðum hvernig reynslan tengist lífinu þínu og hvað, ef eitthvað, þú vilt taka með þér áfram.  

    Það skiptir ekki máli hvort reynslan er nýafstaðin eða lengra um liðin — stundum kemur þörfin fyrir að vinna með hana ekki fyrr en síðar.

  • Pör

    Fyrir pör sem vilja undirbúa sig saman fyrir hugvíkkandi reynslu, vinna úr sameiginlegri reynslu eða fá stuðning þegar reynsla annars aðilans hefur áhrif á sambandið.

    Í undirbúningi getum við meðal annars skoðað væntingar, ásetning, mörk og samskipti og hvað hvort ykkar þarf til að upplifa meiri skýrleika og öryggi í ferlinu.

    Eftir á fáið þið rými til að ræða það sem kom upp og hvernig reynslan hafði áhrif á hvort ykkar fyrir sig og sambandið. Upplifun tveggja einstaklinga getur verið mjög ólík, jafnvel þegar þeir fara í gegnum sama ferðalag.

    Markmiðið er ekki að þið þurfið að skilja eða upplifa hlutina á sama hátt, heldur að skapa rými þar sem reynsla beggja fær að vera til staðar.

  • Undirbúningur

    Undirbúningur snýst ekki bara um að ákveða ásetning. Við skoðum hvað þú ert að fara inn í, væntingar, ótta eða óvissu og hvað er að gerast í lífinu þínu núna.

    Við ræðum líka mörk, stuðning og hvað getur hjálpað þér að mæta reynslunni með meiri meðvitund og öryggi. Góður undirbúningur snýst líka um að vita hvað þú ert að fara inn í og hafa skýran ramma í kringum ferlið.

  • Eftirvinna

    Stundum er reynslan sjálf bara byrjunin. Eftir á geta komið sterkar tilfinningar, spurningar, ný sýn eða hlutir sem maður veit ekki alveg hvað á að gera við.

    Í eftirvinnunni skoðum við það sem kom upp, hvernig það tengist þér og lífinu þínu og hvernig hægt er að samþætta reynsluna inn í daglegt líf – hvað þú vilt taka með þér áfram og hvað þarf kannski meiri tíma og athygli.

Mín nálgun

Ég kem inn í þessa vinnu með margra ára reynslu af líkamsvinnu, yoga, taugakerfinu, somatic-vinnu og tónheilun, ásamt námi í undirbúningi og eftirvinnu í hugvíkkandi  ferða og reynslu.

En engir tveir koma með sömu sögu og þess vegna vinn ég ekki eftir einni ákveðinni uppskrift.

Stundum er samtalið það sem þarf. Stundum hjálpar að færa athyglina úr höfðinu og yfir í líkamann með öndun, hreyfingu, líkamsvitund eða tónheilun.

Náttúran og skapandi leiðir geta líka orðið hluti af vinnunni. Ganga, hafið, kyrrð úti eða skapandi vinna getur stundum opnað aðra leið en samtalið.

Bakgrunnurinn minn er ekki eingöngu faglegur. Ég þekki sjálf áföll, sorg og stóran missi. Sú reynsla hefur kennt mér að við vinnum ekki öll eins úr því sem verður á vegi okkar og að líkaminn er oft með í ferlinu þegar orðin ná ekki alveg utan um það.

Þess vegna byrjum við ekki á að ákveða hvernig þú átt að vinna úr þinni reynslu. 
Við byrjum á þér.

Ég túlka ekki reynsluna fyrir þig eða segi þér hvað hún þýðir. Við skoðum hvað hún vakti, hvað þú finnur og hvað – ef eitthvað – þú vilt taka með þér áfram.

Við byrjum þar sem þú ert.

Hugvíkkandi samtal

Þú þarft ekki að vera búin/n að ákveða nákvæmlega hvað þú ætlar að vinna með áður en þú kemur.

Samtalið getur verið hluti af undirbúningi fyrir hugvíkkandi reynslu eða eftirvinna þegar þú vilt fá rými til að skoða það sem kom upp og hvernig það hafði áhrif á þig.

Við byrjum á því sem er hjá þér núna. Það geta verið væntingar, ásetningur, ótti eða mörk eða reynsla sem þú ert að reyna að skilja og finna hvernig þú vilt vinna áfram með hana í daglegu lífi.

Ég túlka ekki reynsluna fyrir þig. Mitt hlutverk er að spyrja, hlusta og hjálpa þér að skoða hana frá fleiri hliðum.

Samtalið getur líka snert sorg, missi, sambönd eða erfiða lífsreynslu sem tengist þínu ferli.

Þú getur komið ein/n eða með maka.

Mikilvægt að vita

Þjónustan hjá Tónalind snýr að undirbúningi og eftirvinnu í tengslum við hugvíkkandi reynslu og það sem henni fylgir.

Ég útvega ekki hugvíkkandi efni og engin notkun þeirra fer fram í tímum hjá mér.

Þjónustan kemur ekki í stað læknis-, sálfræði- eða annarrar heilbrigðisþjónustu.