Yin Yoga

Yin Yoga

Yin yoga hjálpar þér til að hæga á þér – Við lifum í menningu sem er stöðugt á ferðinni og krefst mikillar hreyfingarm virkni, örvunar á ábyrgðar Yin yoga býður þér að gera hið gagnstæða - að hægja verulega á sér, snúa aftur til nútíðarinna og tengjast meðvitað við sjálfan þig.

Meiri hreyfanleiki

Yin jóga teygir og beinist að bæði  á djúpum bandvefjum milli vöðvanna og bandvefjum um allan líkamann. Markmiðið er að auka blóðrásina í liðunum og bæta hreyfanleika þar sem stöðurnar teygja á og örva bein og liði.

Aukin orka

Yin yoga hægir á andardrættinum og dregur þig dýpra og dýpra inn í þennan parasympatíska eða slökunarham. Þetta er tími þar sem innri líffæri þín fá tækifæri til að ná í sinn eigin verkefnalista eins og að melta, losa sig við eiturefni, gróa og gera við. Að virkja parasympatíska taugakerfið er gagnlegt til að draga úr streitu og spennu, lækka blóðþrýsting, stjórna svefni, aðstoða meltingu, styrkja ónæmisstarfsemi, koma jafnvægi á hormóna og auka almenna orku og vellíðan.

Betri svefn

Yin yoga býður líkamanum að losa sig við streitu og spennu, bæði í líkama og huga. Yin iðkun getur hjálpað til við að jarðtengja orkuna og stuðla að endurnærandi hvíld.

Dregur úr streitu

Við lifum í heimi þar hraða, mikillar vinnu, samfélagsmiðla sem tröllríða yfir alla með allskonar efni. Það er því engin furða að kvíði og streita séu að aukast gríðalega. Yin yoga er frábær leið til að slaka á, finna kyrrð í stöðunum og leyfa tímanum að líða um stund. Með því að gera Yin yoga gefur þú þér nægan tíma til að gera ekkert annað en að „bara vera“

Sjálfsrækt

Yin yoga er frábær leið til að opna hjartað, róa taugakerfið og veita líkamanum rými til að slaka djúpt á. Yin yoga er falleg leið til að tengjast aftur líkama þínum á blíðan og mildan hátt.

Losar um tilfinningar/ áföll

Yin yoga stöðurnar geta losað um sterkar tilfinningar. Tilfinningar þínar er geymdar í ýmsum líkamshlutum. Minningar, kvíði og spenna dvelja í fumum sem eru geymdar djúpt í bandvef þínum. Við vissar stöður geta minningar og tilfinningar komið upp aftur, með og hjálpað þér að sleppa hlutum sem þjóna þér ekki lengur tilgangi.

Kynnstu sjálfum þér

Vertu tilbúin til að kynnast tilfinningum þínum, skynjunum, hugsunum og skoðunum. Þegar þú byrjar að iðka Yin yoga lærir þú að hlusta á líkama þinn og þekkja hugsanir þínar í stað þess að láta þær þjóta um hugan og trufla þig.

Til baka í blogg