Aðeins um okkur

Tónalind er staður þar sem þú mátt hægja á, hlusta á líkamann og gefa þér rými til að vera. Hér er unnið með hljóð, hreyfingu og nærveru á mjúkan og nærandi hátt, með það að markmiði að róa taugakerfið, losa um spennu og styðja við jafnvægi í líkama og huga.

  • Tónheilun, einnig kölluð hljóðbað, er róleg og nærandi stund þar sem unnið er með tóna og tíðni til að styðja við djúpslökun og innra jafnvægi. Með hljóði er skapað rými fyrir líkamann til að mýkjast, hægja á sér og losa um spennu, á sinn eigin hátt og á sínum eigin tíma.

  • Mjúkir tímar þar sem unnið er markvisst að losa spennu í bandvef og vöðvum líkamans með mjúkum boltum, Yinyoga stöðum/teygjum og djúpöndun. Þetta eru rólegir en krefjandi tímar fyrir alla sem sækjast eftir meiri liðleika, vilja létta á spennu í líkamanum, bæta öndun, auka súrefnisupptöku og ná góðri líkamlegri og andlegri slökun.

  • Light Within er nærandi dagur 20.júni 2026 sem flæðir inn í kvöldið í Skúlagarði á Norðurlandi eystra, leiddur af Tinnu og Ingunni sem hafa áratuga reynslu af vinnu með líkama, taugakerfi og vellíðan. Unnið er með mjúka hreyfingu, öndun, tónheilun og djúpa slökun til að styðja líkamann í að losa um spennu og finna meira jafnvægi. Kvöldið endar með eldseremóníu þar sem þátttakendur fá tækifæri til að sleppa því sem þeir vilja ekki taka með sér inn í sumarið.