Skip to product information
1 of 1

Ekkert sem þarf – Kakó & tónheilun

Ekkert sem þarf – Kakó & tónheilun

Ekkert sem þarf  

Kakó - Tónheilun - Hvíld 

Það er eins og hvíld sé orðin eitthvað sem við þurfum að standa okkur í.
Að slaka nógu vel á. Anda rétt. Vera nógu meðvituð.

En þetta kvöld er ekkert sem þarf.

Við byrjum kvöldið saman með góðu ceremonial kakói, hægjum á og gefum okkur tíma til að lenda.

Þaðan tekur hljóðferðalagið við þar sem tónar og titringur kristalsskálar, tíbetskra skála, gongs og annarra hljóðfæra leiða okkur inn í djúpa slökun.

Þú þarft ekki að kunna að hugleiða.
Þú þarft ekki að „gera“ tónheilun rétt.
Þú þarft í raun ekki að gera neitt.

Bara mæta eins og þú ert.

Föstudagur 11. september
Kl. 19:30–21:00
Yogasmiðjan / Heilsurækt
Bíldshöfða 16, Reykjavík

Verð: 6.500 kr.

Á staðnum eru dýnur, teppi, púðar og augngrímur. Ef þú vilt hafa extra mjúkt undir þér er þér velkomið að taka með þér eigin yoga dýnu eða þykkt undirlag.

90 mínútur þar sem ekkert þarf að klára, laga eða leysa.
Bara smá rými frá öllu hinu.

 

Regular price 6.500 ISK
Regular price Sale price 6.500 ISK
Tilboð Sold out
Taxes included.
Quantity
View full details