Gulur September - Hljóðferðalag - 9.september
Gulur September - Hljóðferðalag - 9.september
Í tilfefni af Gulum september bjóðum við þér í hlýja og nærandi tónheilun sem er sérstaklega ætluð þeim sem hafa misst ástvin.
Sorgin fylgir engum reglum og hefur engan tímaramma. Hún getur verið þung, hljóðlát, óvænt eða fylgt okkur í öldum. Stundum er það sem við þurfum mest á að halda ekki svör, heldur öruggt rými þar sem við megum einfaldlega vera.
Í þessari stund gefum við líkama og huga tækifæri til að hvílast. Á meðan þú liggur eða situr þægilega, umvefja mjúkir hljómar kistalskála, tíbetskra skála, gongs og annarra hljóðfæra rýmið og skapa stund kyrrðar, nærveru og mýkt. Þú þarft ekkert að kunna og ekkert að gera. Þú mátt einfaldlega koma eins og þú ert.
Í hraða dagsins gleymum við oft að hlusta, ekki aðeins á aðra heldur líka á okkur sjálf. Þessi stund er boð um að hægja á, sleppa takinu um stund og leyfa líkama og huga að hvílast í öruggu og nærandi rými.
Viðburðurinn er hluti af Gulum september, samvinnuverkefni stofnanna og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Markmið verkefnisins er að efla geðrækt, vekja athygli á mikilvægi sjálfsvígsforvarna og minna okkur á gildi kærleika, aðgátar og umhyggju.
Þessi viðburður er haldin í samstarfi við Minningarsjóð Ólafar Töru, sem vinnur við verkefni á sviði geðræktar, sjálfsvígsforvarna og fræðslu.
Tónheilunin er leidd af Tinnu Arnardóttur og Ingunni Rögnu Sævarsdóttur.
Við höfum báðar gengið í gegnum djúpa sorg og vitum af eigin reynslu hversu dýrmætt það er að eiga rými þar sem maður þarf ekki að útsýra neitt. Mepð þeirri reynslu og sjúpri virðingu fyrir sorgarferlinu viljum við skapa örugga og nærverandi stund þar sem þú færð að hvílast, anda og einfaldlega vera.
Það er með þeirri virðingu og umhyggju sem við bjóðum þér þessa stund, án væntinga og án krafna. Stundum er mesta gjöfin ekki að finna svör heldur að finna rými þar sem maður fær að vera.
Og skapa rými fyrir von, umhyggju og samtal. Með þeirri von að skapa öruggt rúmi fyrir þau sem, lifa með missi.
Þú ert hjartanlega velkomin(n), hvar sem þú ert stödd eða staddur í sorgarferðinni.
Tímalengd 70 mínútur.
Þátttaka er öllum að kostnaðarlausu.
Viðburðinn fer fram hjá Lotus þjálfun, Hátúni 6b, 105 Rvk.
Viðburðinn fer fram hjá Lotus þjálfun, Hátúni 6b, 105 Rvk.
16.september 2026 - kl.19:30
Ef þú vilt styðja áframhaldandi starf Minningarsjóðs Ólafar Töru er þér velkomið að leggja fram fjálst framlag. Öll framlög renna óskert til verkefna sjóðsins.
Minningarsjóður Ólafar Töru
Kt.451125-0600
Banki 0357-22-006171
Couldn't load pickup availability
Share
