Skip to product information
1 of 1

Bandvefslosun - Bolta nudd 1x í viku mánudagar kl.16:30 ( 4 vikur) - Hefst 16 mars

Bandvefslosun - Bolta nudd 1x í viku mánudagar kl.16:30 ( 4 vikur) - Hefst 16 mars

Tímar þar sem unnið er markvisst að losa spennu í bandvef og vöðvum líkamans með mjúkum boltum, Yinyoga stöðum/teygjum og djúpöndun.

Í hverjum tíma er unnið með ákveðið hreyfiflæði til að styrkja bak, auka hreyfanleika hryggjasúlunnar og bæta líkamsstöðu. Boltana notum við til að til að nudda á ákveðnum þrýstipunktum líkamans með þeim tilgangi að losa um festur, losa spennu í vöðvum, mýkja bandvef, auka blóðflæði og endurnæra sogæðakerfið.

Þetta eru rólegir en krefjandi tímar fyrir alla sem sækjast eftir meiri liðleika, vilja létta á spennu í líkamanum, bæta öndun, auka súrefnisupptöku og ná góðri líkamlegri og andlegri slökun.

Tíminn hentar sérstaklega vel fyrir þá sem upplifa:

  • Stirðleika eða spennu í hálsi, herðum og/eða mjóbaki
  • Þreytu eða líkamlegt álag
  • Streitu og lítinn svefn
  • Minni hreyfigetu eða stirðleika í líkamanum 
  • Þörf fyrir róandi, endurnærandi hreyfingu

Tímarnir eru 60 mínútur

Regular price 14.000 ISK
Regular price Sale price 14.000 ISK
Tilboð Sold out
Taxes included.
Quantity
View full details