Væntanlegt - Dagskrá og skráning verða auglýst fljótlega.
Losaðu um – allur líkaminn
Losaðu um – allur líkaminn
Losaðu um – allur líkaminn
Þitt eigið viðhaldsprógramm
Áttu bolta heima og nokkrar æfingar sem þú kannt alveg… en manst sjaldnast eftir þegar þú þarft á þeim að halda?
Í þessari 90 mínútna vinnustofu förum við yfir einfalt viðhaldsprógramm fyrir allan líkamann. Við vinnum með bolta, mjúkar teygjur og hreyfingu og skoðum hvernig þú getur sett saman rútínu sem hentar þér.
Við förum meðal annars yfir:
• fætur og kálfa
• mjaðmir, rass og mjóbak
• brjóstkassa og bak
• háls og herðar
• einfaldar hreyfingar sem tengja svæðin saman
Markmiðið er ekki að gera hundrað æfingar eða finna alla aumu punktana í líkamanum á einu kvöldi. Markmiðið er að þú farir heim með einfalt prógramm sem þú skilur, manst eftir og getur raunverulega notað.
Þetta er tilvalið fyrir þig sem vilt læra grunninn, rifja upp æfingar sem þú kannt nú þegar eða loksins dusta rykið af boltunum sem hafa verið í mjög langri hvíld uppi í skáp.
Vinnustofan verður haldin einu sinni í mánuði og því geturðu líka mætt reglulega til að rifja upp, fá nýjar hugmyndir og halda boltanum – og líkamanum – aðeins betur við.
Engin flókin fræði og engin liðleikakeppni. Þú þarft enga fyrri reynslu og vinnur alltaf á þínum hraða.
Lengd: 90 mínútur
Verð: 6.500 kr.
Staður: Lotus þjálfun - Hátún 6b
Dagsetning: [dagsetning og tími]
Mættu í þægilegum fötum sem gott er að hreyfa sig í.