Skip to product information
1 of 1

Væntanlegt - Dagskrá og skráning verða auglýst fljótlega.

Losaðu um – brjóstkassi, öndun & bak

Losaðu um – brjóstkassi, öndun & bak

Losaðu um – brjóstkassi, öndun & bak

Finnst þér brjóstkassinn stífur, öndunin grunn eða bakið alltaf eitthvað að kvarta?

Brjóstkassinn er ekki bara beinagrind utan um lungun. Hann á að geta hreyfst með önduninni og vinnur náið með hryggnum, herðunum og vöðvunum í kring. Þegar hreyfingin verður lítil getur öndunin orðið grynnri og bakið þurft að vinna meira.

Skjáseta, streita og það að sitja lengi í sömu stöðu hjálpar yfirleitt ekki til. Líkaminn er ekkert sérstaklega hrifinn af því að vera brotinn saman yfir síma allan daginn. 

Í þessum 90 mínútna vinnustofu förum við yfir:

• hvernig brjóstkassi, öndun og bak tengjast
• hvernig brjóstkassinn hreyfist þegar við öndum
• hvernig stífleiki getur haft áhrif á öndun og hreyfingu baksins
• einfaldar æfingar með boltum, teygjum, öndun og hreyfingu
• hvað þú getur sjálf/ur gert heima

Við vinnum meðal annars með svæðið í kringum rifbein, brjóstvöðva, hliðar og bak. Markmiðið er ekki að þvinga fram einhverja risastóra öndun heldur að skapa aðeins meira rými svo öndunin geti flætt auðveldlega.

Þetta er líka frábær upprifjun fyrir þig sem átt bolta heima en manst ekki alveg hvað þú átt að gera við þá. Nú er kominn tími til að dusta af þeim rykið og koma þeim aftur í vinnu.

Þetta verður blanda af einfaldri fræðslu og verklegum æfingum. Engin flókin fræði og engin krafa um að anda „rétt“. Við ætlum bara að skoða hvað hjálpar þínum líkama að hreyfast og anda aðeins frjálsar.

Þú þarft enga fyrri reynslu og allar æfingar eru gerðar á þínum hraða.

Lengd: 90 mínútur
Verð: 6.500 kr.
Staður: Lotus þjálfun - Hátún 6b
Dagsetning: [dagsetning og tími]

Mættu í þægilegum fötum sem gott er að hreyfa sig í.

Regular price 6,500 ISK
Regular price Sale price 6,500 ISK
Tilboð Sold out
Taxes included. Shipping calculated at checkout.
View full details