Skip to product information
1 of 1

Væntanlegt - Dagskrá og skráning verða auglýst fljótlega.

Losaðu um - Rass, mjaðmir & mjóbak

Losaðu um - Rass, mjaðmir & mjóbak

Losaðu um – rass, mjaðmir & mjóbak

Ertu stíf/ur í mjöðmunum, aum/ur í rassinum eða alltaf eitthvað að finna fyrir mjóbakinu?

Þessi svæði vinna öll saman. Þegar eitt þeirra er stíft eða hreyfist ekki nógu vel þurfa hin oft að taka meira á sig. Staðurinn sem kvartar er nefnilega ekki alltaf staðurinn þar sem spennan byrjar. Sem væri vissulega mjög þægilegt – en líkaminn virkar bara ekki alveg þannig. 

Í þessum 90 mínútna workshop ætlum við að fara yfir:

• hvernig rass, mjaðmir og mjóbak tengjast
• af hverju stífleikinn kemur oft aftur
• einfaldar leiðir til að losa um spennu
• æfingar með boltum, teygjum og hreyfingu
• hvað þú getur sjálf/ur gert heima

Workshopið er líka tilvalið fyrir þig ef þú átt bolta heima sem hafa aðallega safnað ryki uppi í skáp. Hér færðu tækifæri til að rifja upp hvernig þú notar þá og læra fleiri einfaldar æfingar.

Þetta verður ekki langur fyrirlestur eða einhver liðleikakeppni. Við ætlum að prófa hlutina, finna hvað virkar og læra að vinna aðeins betur með líkamann.

Þú þarft enga fyrri reynslu og þarft alls ekki að vera liðug/ur. Það er eiginlega bara mjög góð ástæða til að mæta.

Lengd: 90 mínútur
Verð: 6.500 kr.
Staður: Lotus þjálfun - Hátúni 6b
Dagsetning: [dagsetning og tími]

Mættu í þægilegum fötum sem gott er að hreyfa sig í.

Regular price 6,500 ISK
Regular price Sale price 6,500 ISK
Tilboð Sold out
Taxes included. Shipping calculated at checkout.
View full details