Skip to product information
1 of 1

Tónheilun & djúpslökun 20. mars kl.19:00 - REYKJAVÍK

Tónheilun & djúpslökun 20. mars kl.19:00 - REYKJAVÍK

Komdu í hljóðferðalag ✨ Jafnvægi & endurnýjun

Leyfðu þér að sökkva inn í hlýja bylgju kristalskálanna — Rými þar sem tónarnir umlykja þig og bjóða þér slökun, jafnvægi og endurnýjun.

Gefðu þér leyfi til að skilja eftir þunga vetursins. Leyfðu hljóðbylgjunum að umvefja þig, láttu spennuna leysast upp og opnaðu fyrir rými að nýrri birtu. Hver tónn leiðir öndunina dýpra, hver bylgja býður tilfinningum lausn — þetta er mjúkt, seiðandi ferðalag með kristalsöngskálum þar sem þú finnur fyrir ró, innri hreinsun og endurnýjandi hvíld.

Djúp slökun og minni streita ✨Upplifðu minni kvíða og meiri ró

Betri svefn og meiri hvíld ✨ Bylgjurna auðvelda aðgöngu að dýpri svefni og betri endurheimt.

Hljóðbylgjur og djúp öndun ✨ leiðin að minni vöðvaspennu og meiri léttleika.

Finndu jafnvægi ✨ Upplifðu vellíðan.

Vagustaugin vaknar ✨ Innra jafnvægi eykst.

Hljóðbylgjurnar flæða í gegnum líkamann og orkukerfi  Leyfðu sálinni að anda.

Staðsetning

Yogamiðjan/Heilsurækt - Bíldshöfði 16 - 2.hæð - Gengið inn að aftanverðu - Næg bílastæði.

Um Tónheilun

Tónheilun/Hljóðbað eru tímar  þar sem unnið er með tóna og tíðni til að kalla fram djúpslökun í líkamanum. Tónheilun hjálpar til við að hægja á hjartslætti, slaka á vöðvum og draga úr streitu ásamt því að núllstilla taugakerfið.  Tónheilun  getur einnig hjálpað til við að koma jafnvægi á orkustöðvar líkamans.

Tónheilun/Hljóðbað getur hjálpað til við að róa taugakerfið.  Ákveðnir tónar og taktar geta virkjað parasympatíska taugakerfið, eða „hvíldar-og-meltingar“ stillingu líkamans. Tónheilun hefur verið tengd við lægra magn kortisóls (lykilstreituhormón) og bætta hjartsláttartíðni (sem er vísir um hversu vel líkaminn jafnar sig eftir streitu).

Tónheilun/Hljóðbað virðist vera nýtt hugtak þó er iðkunin að lækna/heila líkama með hljóði tæknilega séð þúsundir ára gömul og á djúpar rætur að rekja til menningarheima um allan heim.

Fólk upplifir Tónheilun/Hljóðbað á mismunandi máta. Sumir finna fyrir mikilli slökun og öryggi, aðrir tala um að það hafi allt hreinsast upp í höfðinu eins og í Tetrisspili og enn aðrir sjá liti.  Algengt getur verið að tilfinningar komi upp sem líkaminn þarf að losa út, getur það brotist út með grát eða eins og spennu á ákveðnu svæði þar sem mein er. Hver og ein upplifun er sérstök og fer eftir ásetningi ferðalagsins hverju sinni.

Regular price 4.000 ISK
Regular price Sale price 4.000 ISK
Tilboð Sold out
Taxes included.
Quantity
View full details